Verkefni · Hygge Bakery

Smá notalegheit geta byrjað á skjánum.

Brauð fyrir helgina, bakkelsi á fundinn eða kaffi í góðum félagsskap. Við smíðuðum vef Hygge til að kynna bakaríið og tengja þessi hversdagslegu tilefni við netpantanir.

Viðskiptavinur
Hygge Bakery
Verkefni
Sérhannaður vefur
Þjónusta
Vefsmíði og netpantanir
Vefur Hygge Bakery
Vefurinn

Bakarí með eitthvað að deila

Hjá Hygge snýst heimsóknin líka um að gefa sér smá stund. Vefurinn gefur viðskiptavinum innsýn í bakaríið, handverkið og hugmyndina á bak við nafnið. Þar geta þeir kynnt sér úrvalið og fundið næsta stað til að setjast niður.

Eitthvað gott til að hlakka til

Viðskiptavinir geta pantað fyrirfram fyrir morgunmat, fundi eða samverustund. Netpantanir Upsell tengja vefinn við þá þjónustu og gera hann að hluta af undirbúningnum áður en nokkur mætir í bakaríið.

Fleiri verkefni

Fleiri staðir. Fleiri sögur.

Öll verkefni
Sérhannaður vefur

Subway Iceland

Sérhannaður vefur fyrir Subway á Íslandi sem sameinar matseðil, staðsetningar og netpantanir á einum kunnuglegum stað.

Sérhannaður vefur

Serrano

Burrito, quesadilla, salöt og tacos eru í aðalhlutverki. Við smíðuðum vef Serrano og tengdum matseðilinn við netpantanir.

Sérhannaður vefur

Flatey Pizza

Vefur sem gefur Flatey eigið rými á netinu, kynnir staðinn og leiðir viðskiptavini að næstu pizzu.

Hvernig gæti þetta litið út fyrir þinn rekstur?

Þú þekkir reksturinn þinn og viðskiptavinina. Við smíðum vefi, öpp og pöntunarupplifanir sem tengja þau saman. Segðu okkur hvað þú hefur í huga og finnum næsta skref í sameiningu.