Fyrirtækið
Við smíðum kerfið sem veitingastaðir keyra á
Upsell er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki í Reykjavík. Við byrjuðum með einfalda spurningu: af hverju þarf veitingastaður fimm ólík kerfi til að selja mat? Í dag keyra 30+ staðir allan sinn rekstur á Upsell, frá einum kaffibar upp í landsdekkandi keðjur.
Smíðað með veitingafólki
Kerfið hefur mótast í raunverulegum rekstri: á kössum í hádegisös, í eldhúsum á föstudagskvöldum og í uppgjörum mánaðamóta. Eiginleikar verða til af þörf, ekki af hugmyndafundum.
Eitt kerfi, engir plástrar
Við trúum ekki á að líma saman fimm kerfi með millihugbúnaði. Kassinn, vefurinn, eldhúsið og bókhaldið eiga að tala saman af því þau eru sami hluturinn.
Íslenskur veruleiki
Íslenskar greiðsluveitur, íslenskt bókhald og íslensk fyrirtækjamenning, ásamt stuðningi á íslensku frá fólki sem þekkir reksturinn þinn.
Tækni í fremstu röð
Kerfið keyrir á dreifðu skýjaneti með rauntímasamstillingu milli allra tækja. Uppfærslur berast sjálfkrafa, enda reka viðskiptavinir okkar veitingastaði, ekki tölvukerfi.
Hafðu samband
Talaðu við okkur
Sjáðu kerfið með þínum matseðli á 30 mínútum
Við setjum upp kynningu með þínum vörum og þínum verðum. Engin skuldbinding, ekkert uppsetningargjald.


