Sex pöntunarleiðir. Eitt kerfi.
Þegar hver sölurás er sitt eigið kerfi drukknar eldhúsið í skjám og strimlum. Hjá Upsell er kassinn, vefurinn, kioskinn, QR-kóðinn, Wolt og AHA sama kerfið. Sami matseðill, sama röð, sama uppgjör.

Einn matseðill alls staðar
Breyttu vöru einu sinni og hún uppfærist á öllum rásum samstundis. Uppselt er uppselt alls staðar.
Ein röð í eldhúsinu
Allar pantanir tímaraðast saman á eldhússkjánum, merktar eftir uppruna.
Eitt uppgjör
Salan af öllum rásum í einni skýrslu og einni bókhaldsfærslu. Engin handvirk samantekt.
Einn viðskiptavinur
Vildarpunktar og pöntunarsaga fylgja viðskiptavininum milli rása.
Settu lausnina saman úr þessum vörum
Kassakerfi
Hraður kassi á Android-spjaldtölvum

Netpantanir
Pöntunarvefur undir þínu vörumerki

Sjálfsafgreiðsla
Kioskar sem stytta raðir og hækka meðalpöntun

Eldhússkjár
Allar pantanir á einum skjá (KDS)

Stjórnborð
Reksturinn í rauntíma, niður á 30 mínútur

QR-pantanir
Borðpöntun úr síma gestsins

Skjámatseðlar
Matseðlar á skjám sem uppfærast sjálfir

Smáforrit
Þitt app í App Store og Google Play

Sjáðu kerfið með þínum matseðli á 30 mínútum
Við setjum upp kynningu með þínum vörum og þínum verðum. Engin skuldbinding, ekkert uppsetningargjald.

