Vara · Netpantanir

Netpantanir án milliliða og án þóknana

Pöntunarvefur undir þínu vörumerki, á þínu léni. Settu pöntunarhnapp á núverandi vef með einum kóðabút eða fáðu sérsmíðaðan vef eins og Subway, Serrano og Te og kaffi.

Eiginleikar

Það sem netpantanir gera fyrir þig

Þrír símaskjáir með netpöntunarsíðu í merkjum staðarins

Þitt vörumerki, þitt lén

Litir, letur og myndmál eftir þínu höfði. Viðskiptavinurinn yfirgefur aldrei vefinn þinn.

Apple Pay- og Google Pay-hnappar, kortaform, vörukort og karfa

Heilt pöntunarferli

Matseðill, karfa, greiðsla og afhending. Allt innbyggt, með Apple Pay og íslenskum greiðslulausnum.

Smáforrit með hnöppum fyrir heimsendingu og sótt, yfir pizzamynd

Sótt, sent eða á staðnum

Afhendingarsvæði eftir póstnúmerum, tímapantanir og sendingar gegnum Wolt Drive, Dropp og fleiri.

Eldhússkjár á fartölvu með nýrri pöntun úr smáforriti

Beint í eldhúsið

Netpantanir birtast á eldhússkjánum við hlið kassapantana. Engin spjaldtölvusúpa á afgreiðsluborðinu.

Smáforrit býður bjór með pöntuninni, hver kostur með plús-hnappi

Tilboð og aukasala

Sjálfvirk meðmæli og tilboð í pöntunarferlinu sem hækka meðalpöntun.

Tungumálaval með fánum: enska, íslenska og pólska

Tungumál

Íslenska og enska innbyggð í allt pöntunarferlið.

Sérhannaðir vefir

Skoðaðu vefina sem við höfum smíðað

Öll vefverkefni →

Te og kaffi

Vefur og app sem færa Te og kaffi nær viðskiptavinum sínum. Skoðaðu úrvalið og pantaðu á netinu, með vildarkortið í vasanum.

Subway Iceland

Sérhannaður vefur fyrir Subway á Íslandi sem sameinar matseðil, staðsetningar og netpantanir á einum kunnuglegum stað.

Serrano

Burrito, quesadilla, salöt og tacos eru í aðalhlutverki. Við smíðuðum vef Serrano og tengdum matseðilinn við netpantanir.

Sjáðu kerfið með þínum matseðli á 30 mínútum

Við setjum upp kynningu með þínum vörum og þínum verðum. Engin skuldbinding, ekkert uppsetningargjald.