Skilmálar

Þjónustuskilmálar

Uppfært í júlí 2026

1. Þjónustan

Upsell veitir hugbúnaðarþjónustu (SaaS) fyrir sölu-, pöntunar- og rekstrarstýringu veitingastaða. Þjónustan er veitt „eins og hún er“ og þróast í sífellu.

2. Áskrift og greiðslur

Þjónustan er seld gegn mánaðarlegu gjaldi samkvæmt gildandi verðskrá eða samningi. Engin uppsetningargjöld eru innheimt og áskrift er án bindingar nema um annað sé samið.

Upsell innheimtir ekki færslugjöld. Greiðslukortagjöld eru innheimt beint af greiðsluveitu viðskiptavinar.

3. Ábyrgð

Upsell leggur áherslu á háan uppitíma og öryggi en ábyrgist ekki órofna virkni. Upsell ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, svo sem töpuðum viðskiptum, sem rekja má til truflana á þjónustu.

4. Gögn viðskiptavina

Sölu- og rekstrargögn tilheyra viðskiptavininum. Við lok viðskiptasambands getur viðskiptavinur óskað eftir afriti af sínum gögnum.

5. Lög og varnarþing

Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.