Persónuvernd
Persónuverndarstefna
Uppfært í september 2026
1. Ábyrgðaraðili
Upsell ehf., Reykjavík, er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga á þessum vef og í Upsell-kerfinu. Fyrirspurnir um persónuvernd má senda á hello@upsell.is.
2. Hvaða upplýsingum söfnum við
Á þessum vef söfnum við aðeins þeim upplýsingum sem þú sendir okkur sjálf/ur, t.d. með tölvupósti eða fyrirspurnarformi (nafn, netfang, símanúmer og efni fyrirspurnar).
Ef þú sendir starfsumsókn tökum við einnig við ferilskrá, kynningu og áhugasviði sem þú gefur upp. Umsóknin og ferilskráin berast okkur með tölvupósti. Tilkynning um móttöku berst í innri samskiptarás okkar.
Í Upsell-kerfinu sjálfu vinnum við pöntunarupplýsingar fyrir hönd veitingastaða sem nota kerfið. Í þeirri vinnslu er Upsell vinnsluaðili og viðkomandi veitingastaður ábyrgðaraðili.
3. Notkun upplýsinga
Upplýsingar úr fyrirspurnum eru eingöngu notaðar til að svara erindinu og fylgja því eftir. Þær eru ekki seldar eða afhentar þriðja aðila í markaðslegum tilgangi.
Upplýsingar úr starfsumsóknum eru notaðar til að meta umsóknina og hafa samband við umsækjanda vegna mögulegra starfa.
4. Varðveisla og öryggi
Gögn eru geymd á öruggum skýjainnviðum innan EES eða hjá aðilum sem uppfylla kröfur GDPR um flutning gagna. Aðgangur er takmarkaður við starfsfólk sem þarf hann starfa sinna vegna.
5. Réttindi þín
Þú átt rétt á aðgangi að þínum upplýsingum, leiðréttingu, eyðingu og að andmæla vinnslu. Hafðu samband á hello@upsell.is til að nýta þessi réttindi. Þú getur einnig beint kvörtun til Persónuverndar.

