Vara · Stjórnborð

Sjáðu reksturinn eins og hann er. Núna.

Eitt stjórnborð fyrir matseðil, verð, tilboð, starfsfólk og uppgjör á öllum starfsstöðvum. Sölugreining niður á 30 mínútna tímabil, borin saman við síðustu viku.

Eiginleikar

Það sem stjórnborðið gerir fyrir þig

Sala í rauntíma

Fylgstu með sölunni streyma inn af öllum rásum og öllum stöðvum, í símanum eða á skjánum.

Matseðilsstjórnun

Vörur, afbrigði, aukahlutir og birgðastaða. Breytingar birtast samstundis alls staðar.

Skýrslur niður á 30 mínútur

Hvenær selst mest? Hvaða vörur bera daginn? Berðu saman daga, vikur og staði.

Hlutverkaskipt aðgangsstýring

Eigandi, rekstrarstjóri, vaktstjóri og starfsmaður sjá hvert um sig það sem þau þurfa.

Sjálfvirkt bókhald

Sala og reikningar samstillast sjálfkrafa við DK Plus, Unimaze og Business Central.

Viðskiptavinaskrá

Pöntunarsaga, vildarpunktar og hópar fyrir markaðssetningu, allt á einum stað.

Sjáðu kerfið með þínum matseðli á 30 mínútum

Við setjum upp kynningu með þínum vörum og þínum verðum. Engin skuldbinding, ekkert uppsetningargjald.