
Eitt eldhús. Einn skjár. Allar pantanir.
Pantanir af kassa, vef, kioskum, QR-kóðum, Wolt og AHA renna saman í eina tímaraðaða röð. Engar fimm spjaldtölvur, enginn strimill sem týnist. Bara næsta pöntun.
Það sem eldhússkjárinn gerir fyrir þig

Allar sölurásir sameinaðar
Sama röð fyrir allar pantanir, sama hvaðan þær koma, litamerkt eftir stöðu og uppruna.

Staða með einni snertingu
Móttekin, í vinnslu, tilbúin, afgreidd. Viðskiptavinurinn fær sjálfkrafa SMS eða tilkynningu.

Biðtími í rauntíma
Áætlaður biðtími reiknast út frá álaginu og skilar sér sjálfkrafa á vefinn og til Wolt.

Stöðvaskjáir
Skiptu eldhúsinu í stöðvar eins og grill, salöt og drykki. Hver stöð sér bara sitt.

Miðaprentun þegar hentar
Zebra- og hitaprentarar fyrir eldhúsmiða og umbúðamerkingar, tengdir sama flæði.

Upsell TV fyrir gesti
Afhendingarskjár í sal sýnir gestum hvaða pantanir eru tilbúnar.
Sterkara með hinum vörunum
Stjórnborð
Reksturinn í rauntíma

Kassakerfi
Hraður kassi á Android-spjaldtölvum

Netpantanir
Pöntunarvefur undir þínu vörumerki

Sjálfsafgreiðsla
Kioskar sem stytta raðir og hækka meðalpöntun

QR-pantanir
Pantað við borðið úr síma gestsins

Skjámatseðlar
Matseðlar á skjám sem uppfærast sjálfir

Sérhannaðir vefir
Vefir sem við höfum smíðað fyrir viðskiptavini

Smáforrit
Þitt app í App Store og Google Play

Vefumsjón
Breyttu vefnum úr stjórnborðinu
Sjáðu kerfið með þínum matseðli á 30 mínútum
Við setjum upp kynningu með þínum vörum og þínum verðum. Engin skuldbinding, ekkert uppsetningargjald.

