
Sérhannaður vefur
Serrano
Burrito, quesadilla, salöt og tacos eru í aðalhlutverki. Við smíðuðum vef Serrano og tengdum matseðilinn við netpantanir.
Subway þarf vart að kynna. Við smíðuðum vef fyrir reksturinn á Íslandi með einfalt hversdagslegt verkefni í huga: að finna stað, skoða matseðilinn og panta.

Í aðalvalmyndinni eru matseðill, staðsetningar og pantanir á einum stað, ásamt upplýsingum um hráefni og ofnæmisvalda. Viðskiptavinir geta komið inn vitandi nákvæmlega hvað þeir vilja eða skoðað úrvalið áður en þeir ákveða sig.
Netpantanir Upsell tengjast vefnum og gefa viðskiptavinum á Íslandi beina leið til að panta hjá keðjunni. Verkefnið sameinar vef alþjóðlegs vörumerkis og pöntunarþjónustu sem tekur mið af staðbundnum rekstri.
Þú þekkir reksturinn þinn og viðskiptavinina. Við smíðum vefi, öpp og pöntunarupplifanir sem tengja þau saman. Segðu okkur hvað þú hefur í huga og finnum næsta skref í sameiningu.