Upsell stjórnborð
Þínar höfuðstöðvar, á netinu.

Sölukerfi sem eflir reksturinn

Yfirsýn hvar sem er
Stjórnborðið er aðgengilegt í öllum snjalltækjum svo þú getir fengið yfirsýn, hvar og hvenær sem er.

Skýrslur í rauntíma
Rauntímaskýrslur sýna þér sölu niður á 30 min tímabil. Fáðu innsýn inn í reksturinn og berðu saman dagleg viðskipti milli útibúa.

Einfalt viðmót
Stjórnborðið er mjög einfalt í notkun. Bættu við nýjum vörum, breyttu pöntun, útibúum og afgreiðslutímum með nokkrum smellum.

Sérsniðið
Upsell býður upp á viðmót sem snýr að þínum rekstri og hjálpar þér að taka upplýstar ákvarðanir.
Flóknar útfærslur gerðar einfaldar
Settu upp sérsniðnar vörur án takmarkana.
Ótakmarkaðir valmöguleikar
Búðu til vöruafbrigði eftir þínu höfði. Utanumhald á vörum í gegnum Upsell á einfaldann máta.

Sjálfstæðar vörueiningar
Veldu hvaða vörueiningar þú vilt búa til og stjórnaðu birgðum, verðlagningu, myndum, texta og framboði fyrir hvert vörunúmer fyrir sig.

Deildu afbrigðum milli vara
Afbrigði geta verið deilt milli vara, eins og stærð, tegund af botni, brauði eða hvað sem er.

Búðu til tilboð
Sérsniðin tilboð með vörur og vöruflokka sem valmöguleika. Takmarkaðu álegg, vörutegundir og valmöguleika inn í hverju tilboði fyrir sig.

Viðbótarsölur (e. upsell)
Hækkaðu krónutölu körfunnar með viðbótarsölum (e. upsell) í tilboðum, stökum vörum og fyrir greiðsluferlið.

Allt á einum stað
Þú færð góða yfirsýn í gegnum stjórnborðið.
Vörur
Allar vörur eru á einum stað í Upsell stjórnborðinu. Stýrðu framboði á mismunandi útsölustöðum, myndum, verðum og tilboðum með auðveldum hætti í stjórnborðinu.
